Fljótandi bananasplitt

19 Mar 2015

Engin verður svikinn af Bananasplitti, einfalt að útbúa og góður! 

Fljótandi bananasplitt

1 bolli möndlumjólk frá Ecomil*
1 stk þroskaður banani
2 msk lífrænt hnetu eða möndlusmjör
1 msk hrátt Rowse hunang eða 4-6 dropar Kal stevia
2 msk lífrænt ósætt Raw CC kakó**
Klakar

Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað í 15-30 sekúndur. Þetta er eiginlega of gott til að vera satt!

* Ecomil möndlumjólkin er ólýsanlega góð, lífræn og aukaefnalaus
** Veistu, kakó er ekki bara kakó, prófaðu bara.