Orka fyrir konur !

01 Sep 2015

GINSENG FYRIR KONUR

Nú er fáanlegt í Heilsuhúsinu Siberian Ginseng frá Lifeplan sem er algerlega sniðið að konum og gefur orku sem hentar kvenlíkamanum mjög vel.

Ginsengið vinnur gegn streitu og örvar hugann án þess að trufla svefn eða valda eirðarleysi. Siberian Ginseng hefur að auki hormónajafnandi áhrif og eykur hæfni kvenlíkamans til að standast líkamlegt og andlegt álag.  

Margar konur upplifa þreytu og slen yfir daginn og þá er gjarnan gripið í eitthvað sætt til að ná sér í smá skammtíma orku og til að auka einbeitinguna. Þetta getur valdið algerum vítahring, ekki næst að byggja upp aukna orku og þó nokkur hætta er á að konur bæti á sig nokkrum kílóum.

 

Siberian Ginsengið getur hjálpað til við að slíta þennan vítahring. Jöfn, góð, endurbætandi orka sem er dásamleg fyrir kvenfólkið og hjálpar þegar streita og álag er mikið.

Ginseng er ein þekktasta heilsujurt í heimi og kannast eflaust margir við Kóreuginsengið. Kóreuginseng er afar kröftugt og veitir mikla orku en hentar konum síður og upplifa margar konur svefnleysi, pirring ásamt fleiri einkennum eftir notkun.

KÓREUGINSENG FYRIR KARLMENN

Margir kannast eflaust vel við Kóreuginseng, sem er kraftmikið og gefur mikla orku. Kóreuginseng er tilvalið fyrir karlmenn en hentar konum yfirleitt ekki eins vel. Það er því nauðsynlegt að gera greinarmun á ólíkum gerðum ginsengs. Komdu til okkar í Heilsuhúsið og fáðu leiðbeiningar um hvað hentar þér til að ná aukinni orku og einbeitingu.

Þú getur keypt Siberian Gingseng í netverslun eða í næsta Heilsuhúsi.