Gulróta og kókossúpa frá Zansibar

25 Jan 2016

Uppskriftin er fengin frá Sigrúnu sem heldur úti vefsvæðinu www.cafesigrun.com og er vinsælast súpan á vefnum. Uppskriftin er unnin út frá súpu sem höfundur smakkaði á veitingastað á Zanzibareyju árið 2007. 

Súpan hentar einstaklega vel fyrir matarboð þar sem hún er mild, inniheldur nánast ekkert sem fólk hefur ofnæmi fyrir, börn elska hana yfirleitt og hún er nægilega saðsöm til að geta staðið ein og sér sem léttur kvöldverður með til dæmis góðu brauði. Auk þess vekur hún skemmtilegar umræður fyrir þá sem hafa áhuga á ferðalögum um framandi slóðir. Mikilvægt er að nota bestu fáanlegar gulrætur til að súpan verði mátulega sæt. Athugið að karrí getur innihaldið fræ.

  •     1 stór    laukur
  •     ferskt engifer, biti á stærð við vínber
  •     4    hvítlauksrif
  •     300 g    gulrætur
  •     150 g    sætar kartöflur
  •     2 msk    kókosolía
  •     1 tsk    karrí
  •     2 stk    gerlausir grænmetisteningar
  •     750 ml    vatn
  •     150 ml    kókosmjólk
  •     1 tsk    salt (Himalaya- eða sjávarsalt)
  •     hvítur pipar
  •     7−10    saffranþræðir (má sleppa en gefur fallegan lit)

Aðferð

  1. Afhýðið lauk, engifer og hvítlauk, gulrætur og sætar kartöflur og saxið gróft.
  2. Hitið kókosolíu í potti og steikið laukinn þar til hann fer að mýkjast. Bætið hvítlauk og engifer út í og steikið áfram í nokkrar mínútur. Bætið karríi út í og hrærið vel.
  3. Bætið helming af vatni (375 ml) út í ásamt gulrótum og sætum kartöflum. Sjóðið í um 30 mín eða þar til grænmetið fer að mýkjast. Bætið afganginum af vatninu ásamt grænmetisteningum út í og hrærið vel. Látið malla við vægan hita í 15 mín. Bætið kókosmjólk út í súpuna ásamt saffranþráðum og salti og pipar eins og þarf.
  4. Maukið súpuna í nokkrar mínútur í matvinnsluvél til að fá silkimjúka áferð eða notið töfrasprota.

Glútenlaus, eggjalaus, hnetulaus, mjólkurlaus, vegan
Fyrir 4