Aduna heitt súkkulaði

19 Oct 2016

Það er ekkert notalegra en að fá sér heitt súkkulaði í haustveðrinu og veturinn skammt undan. Sérstaklega þegar þú veist hve hollt kakóið er. Þessi einfalda og fljólega uppskrift af heitu súkkulaði með Aduna Super-Cacao dufti gæti orðið ein af þínum uppáhalds!

Aduna Super-Cacao, stuðlar að mýkt æða og slagæða, eðlilegra blóðflæði og heilbrigði hjarta og æðakerfis. Kakóið er því frábært fyrir þá sem eru með of háan blóðþrýsting eða finna oft fyrir hand- og fótkulda. Segjum bless við kaldar hendur og fætur

Innihald:

  • 2 tsk Aduna Super-Cacao Powder
  • 1 bolli(250ml) mjólk (við notum möndlumjólk)
  • 1-3 tsk hlynsýróp
  • Skvetta af vanillu extract  (má sleppa)

Aðferð:

  1. Hitið mjólk í potti á vægum hita.
  2. Hrærið saman við mjólkina, Aduna Super-Cacao og hlynsírópi og hitið þar til að það fer aðeins að freyða.
  3. Takið af hellu og bætið út í örlitlu af vanillu extract.
  4. Hellið í könnu eða beint í bolla, dreifið smá Aduna Super Cacao dufti yfir og berið fram strax.

Njóttu!