Áhrif:
- Náttúruleg lausn gegn bólum og fílapenslum
- Bólgueyðandi og sótthreinsandi
- Róar og dregur úr pirringi í húð
- Húðgerð: Fyrir bólur, hormónabólur, bólur vegna rósroða og fílapensla.
Notkun: Notið bómull eða eyrnapinna til að bera eingöngu á bólur þrisvar til sex sinnum á dag. Hristist fyrir notkun. Athugið að þetta er ekki andlitsvatn til að bera á allt andlitið, heldur eingöngu á bólur. Má líka nota á bak og önnur bólótt svæði á líkamanum. Þegar dagkremið er notað með bóluhreinsinum er hann fyrst borinn á bólurnar og látinn vera á, síðan er dagkremið borið yfir. Má nota á meðgöngu.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Bóluhreinsirinn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Bóluhreinsirinn er framleiddur oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hans. Geymist við stofuhita.