GLÓey 60 ml. fjarlægir húðflögur, stuðlar að endurnýjun húðarinnar og eykur vellíðan. Þessi djúphreinsandi maski er nærandi og stuðlar að sléttri og geislandi húð, dregur úr ummerkjum öldrunar og auðveldar húðinni að drekka í sig næringarefni og raka. Í GLÓey eru marðir ólífukjarnar, hressandi minta (þunglyndislyf í ilmolíumeðferð) og handtíndar, villtar, íslenskar jurtir sem vinna saman við að endurvekja náttúrulegan ljóma húðarinnar.
SteinEY 60 ml. jafnar húðina, örvar efnaskipti fruma, styrkir vefi og dregur úr áhrifum öldrunar. Andlitsmaski sem jafnar áferð húðarinnar með því að fjarlægja dauðar húðfrumur, eiturefni og óhreinindi sem auðveldar upptöku á næringarefnum og raka inn í húðina. steinEY inniheldur steinefnaríkan leir úr Eyjafjallajökli og handtínt villt íslenskt birki sem nærir húðina og stuðlar að náttúrulegu jafnvægi hennar