Spennandi vörur frá Episilk

05 Dec 2014

Episilk andlitslínan er þekkt fyrir að vera náttúruleg gæðavara og nú eru komnar tvær frábærar nýjar vörur í þessari skemmtilegu vörulínu.

PREMIUM FACIAL CREAM

Nú er komið á markað frá Episilk andlitskremið Premium Facial Cream, sem inniheldur hyaluronic sýru eins og allar aðrar Episilk vörur. Andlitskremið viðheldur og framkallar ferskleika og raka í húðinni, en það er hannað sérstaklega til að berjast gegn rakamissi í þroskaðri húð. Þetta létta, svalandi og endurnýjandi krem veitir húðinni góðan og nauðsynlegan styrk með góðri næringu. Andlitskremið er sannkölluð hágæða vara sem dregur talsvert úr hrukkum og sléttir húðina.

Hágæða andlitskrem

PREMIUM FACIAL CREAM
    EngiN skaðleg Parabenefni og ilmefnalaust
    Með fyrsta flokks hyaluronic sýru – ekki úr hanakömbum
    Hágæða formúla sem veitir raka og skilur húðina eftir mýkri og sléttari

 

 

 

SKIN PERFECTING LOTIONSkin Perfecting Lotion frá Episilk inniheldur einnig hya-luronic sýru. Kremið er í raun hágæða blanda sem gefur húð-inni öfluga andoxun og olíu--lausan raka. Það róar húðina, bætir áferð hennar og tærleika, án þess að stífla húðopin eða pirra húðina. Kremið inniheldur einnig Regu-Seb sem unnið er úr ávaxtaþykknum og getur fært olíumyndun húðarinnar í eðlilegt horf og komið útbrotum og fílapenslum fyrir kattarnef. Í stuttu máli má segja að hún hjálpi til við að stjórna olíumyndun í húðinni og draga saman húðopin. Ef þú ert með of feita húð eða grófa þá skaltu kynna þér þessa frábæru vöru.

SKIN PERFECTING LOTION
    Engin skaðleg Parabenefni og ilmefnalaust
    Nógu milt fyrir viðkvæma húð
    Áhrifarík innihaldsefni, Hyaluronic sýra, þykkni úr grænu tei og Regu-Seb
    Dregur úr olíumyndun
    Gefur húðinni sléttari áferð
    Stuðlar að heilbrigðu útliti húðarinnar