Terranova Omega Olía 3-6-7-9

30 Sep 2015

Er húðin þurr og líflaus? Sama hvað þú notar af kremum? Þá þarft þú líklega að mýkja og næra húðina innanfrá. Hvernig væri að prófa Omega 3-6-7-9 frá Terranova? Hún er dásamleg fyrir húðina og alla líkamsstarfsemi.

Olían er unnin úr jurtaríkinu og er að sjálfsögðu án allra aukaefna, eins og allar vörur Terranova. Aðeins 1-2 tsk. á dag og þú mátt eiga von á að húðin þín ljómi.


Þarna er allur hópurinn samankominn, omega 3, 6, 7 og 9 sem er sjaldgæf sjón en gleðileg. Fyrir marga er þessi samsetning fitusýra það sem virkar og skiptir máli. Þessi blanda tryggir að rétt jafnvægi sé milli fitusýranna, en það er mjög mikilvægt líkamsstarfseminni og almennu heilbrigði. Það sem gerir þessa blöndu sérstaka er að hún inniheldur hina mikilvægu omega 7 sem er einstök til að næra slímhúðir lík-amans og halda húðinni ungri og ferskri.


Fitusýrurnar eru allar unnar úr lífrænu hráefni úr jurtaríkinu, sem þýðir að grænmetis- og jurtaætur geta nýtt sér olíuna. Einnig heillar hún þá sem telja olíu úr fiski of mengaða og mikið unna til manneldis.

Terranova fæst í netverslun Heilsuhússins