Kurkuma latte eða gullna mjólkin

29 Jun 2016

Kurkuma latte, Turmerik mjólk eða gullna mjólkin er einstaklega bragðgóður drykkur og jafnframt góður fyrir líkama og sál. Hér eru tvær góðar uppskriftir!

Kurkuma latte, uppskrift:

• 1 tsk Kurkuma Latte duft í 200ml mjólk (best í hnetu, fræ eða hrísmjólk) hrærið saman og hitið.

Gott að sæta með hunangi eða sýrópi að smekk.

 

Ayurveda, Golden milk, uppskrift:

1.   Fyrst þarftu að undirbúa túrmerik þykkni. 

Setjið 1/4 bolla af túrmerik latte blöndu með 1/2 bolli vatn í pott,

Látið  krauma á  lágum hita þar til orðið að þykkni.

Þykknið er hægt að geyma í 5-7 daga í kæli.

- Til að gera í minna magn: 1 vel full matskeið (um 8 g) af túrmerik Latte

í 30 ml af vatni og hrærið yfir lágum hita þar til alveg þykkt.

2.   Notið svo 1 teskeið af túrmerik þykkni í 200ml mjólk (best í hnetu eða fræmjólk) hrærið saman og hitið yfir miðlungs hita í 4-5 mínútur. Látið suðuna alveg koma upp.

3.   Gott er að setja 1 teskeið af Sólgætis kókosolíu. 

4.   Gott að sæta með Sólgætis kókossykri.

 

Ath: Kryddið leystist ekki alveg upp, alltaf aðeins kornótt !