Sætkartöflubrúnkur

18 Nov 2016

Brúnkurnar eru himneskar. Það hljómar skringilega að setja grænmeti í sæta rétti en sætar kartöflur bragðast hvort sem er meira eins og eftirréttur og þær eru svo þéttar og klístraðar! Uppskriftin er fengin úr bókinni Ómótstæðileg Ella, sem inniheldur fjölda heilsusamlegra uppskrifta. 

Uppskrift, 10-12 brúnkur

  • 2 stk miðlungsstórar sætar kartöflur (600 g)
  • 14 stk Medjool döðlur, steinlausar
  • 2/3 stór bolli malaðar möndlur (80 g)
  • 1/2 stór bolli bókhveiti- eða hýðishrísmjöl (100 g)
  • 4 msk hrátt kakóduft
  • 3 msk hlynsíróp
  • saltklípa

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur 160°)
  2. Skrælið sætar kartöflur. Skerið þær í bita og gufusjóðið í um 20 mínútur, þar til þær verða mjög mjúkar.
  3. Þegar þær eru orðnar mjúkar í gegn og byrjaðar að detta í sundur blandið þið þær í matvinnsluvél ásamt steinlausum döðlum þar til þetta verður að mjúku deigi.
  4. Blandið þeim hráefnum sem eftir eru saman í skál, áður en þið hrærið sætu kartöflunum og döðlunum vel saman við.
  5. Setjið bökunarpappír í ofnfast form, hellið deiginu í það og bakið í um 20-30 mínútur, þar til þið getið stungið í kökuna með gaffli og hann kemur þurr út. Losið kökuna úr forminu og leyfið henni að kólna í um 10 mínútur. Það skiptir miklu máli þar sem brúnkurnar þurfa þennan tíma til að loða saman!

Gott ráð: Ef þið eigið ekki til hrátt kakóduft getið þið notað hefðbundið kakóduft, en þið þurfið þá að tvöfalda magnið hið minnsta.

 

Ómótstæðileg Ella, konan á bakvið bókina.

Ella Mills er ein skærasta stjarnan í matreiðsluheiminum í Bretlandi. Þegar hún veiktist skyndilega af stöðubundinni hjartsláttartruflun (POTS) ákvað hún að breyta mataræðinu og fór að neyta jurtafæðu eingöngu. Tveimur árum síðar var hún laus við öll einkenni sjúkdómsins. Í dag er Ella metsöluhöfundur og heilsugúrú, auk þess sem hún framleiðir vörur undir eigin nafni og rekur vinsæla veitingastaði í London. Ómótstæðileg Ella hefur komið út í 20 löndum og geymir dásamlega ljúffenga og einfalda rétti sem stuðla að góðri orku og glöðu geði.

Uppskriftirnar eru allar vegan, glúten- og mjólkurlausar.

Bókin fæst í Heilsuhúsinu og á heilsuhusid.is.