Fylltar paprikur með kínóa

28 Apr 2017

Ljúffeng uppskrift að fylltum paprikum með kínóa, mosarella og döðlum.


 

Innihald:

  • Tvær rauðar paprikur
  • c.a. 150 gr. Kínóa frá Sólgæti
  • 1 laukur, fínt saxaður
  • 2 hvítlauksgeirar
  • c.a. 40 gr. kaldpressuð lífræn kókosolía frá Sólgæti
  • 2 tómatar
  • 1 mosarella ostur
  • 4-5 lífrænar döðlur frá Sólgæti
  • Fersk basilika
  • Parmesan ostur

Aðferð:
Sjóðið kínóað samkvæmt leiðbeiningum aftan á poka. Skerið paprikurnar í tvennt og leggið á olíuborði eldfast mót. Steikið laukinn og hvítlaukinn saman á vægum hita á pönnu þar til laukurinn er orðinn linur. Takið kjarnan úr tómötunum og skerið þá í litla teninga, sama á við um mosarella ostinn og döðlurnar. Skerið sirka eitt búnt af basiliku gróft niður, það má líka rífa hana niður. Bætið kókosolíunni á pönnuna með lauknum, ásamt öllu öðru, blandið vel saman. Setjið fyllinguna í paprikurnar og eldið í ofni í sirka 40 mínútur á 180 gráðum.