Múslí orkustykki

11 Oct 2017

Orkustykki með höfrum og fræjum.

Gerir 4 stykki. Bökunartími: 40 mínútur
 
Innihald:
  • 30 gr hafraflögur
  • 30 gr graskersfræ
  • 30 gr hampfræ
  • 20 gr kakósmjör
  • 4 msk síróp (döðlu, kókos eða agave)
  • Innihald úr 2 YOGI Women´s energy tepokum
  • 10 dropar vanillu extrakt
Aðferð:
  1. Bræðið kakósmjör í potti við vægan hita
  2. Bætið við sírópi, vanillu extrakt og innihaldi tepokanna og hrærið vel saman
  3. Bætið við hafraflögum, graskersfræjum og hampfræjum og blandið vel saman
  4. Setjið í frystinn í 15 mínútur
  5. Mótið svo 4 orkustykki úr blöndunni og  frystið aftur í 15 mínútur
  6. Pakkið hverju stykki inn í bökunarpappír svo þau festist ekki saman
  7. Geymið í kæli eða frysti
  8. Líka hægt að gera kúlur
2 fyrir 1

Sonnentor Vanillustöng

2.129 kr