Ofnbakaðar hnetur - sætar og saltar

11 Oct 2017

Girnilegar hnetur sem eru gott millimál.

 
Gerir 4 skammtar. Tekur 15 mínútur
 
Innihald salt:
  • 40 gr kasjúhnetur
  • Innihald úr 1 YOGI ginseng flower tepoka
  • 2 msk avocado olía
  • 1/2 tsk sjávarsalt
Innihald sætt:
  • 40 gr kasjúhnetur
  • Innihald úr 1 YOGI bedtime tepoka
  • 4 msk síróp (kókos, hlyn, döðlu eða agave)
Aðferð:
  1. Hitið ofninn að 150°C
  2. Blandið sæta og salta í sitthvorri skálinni
  3. Takið öll innihaldsefni hvors um sig og blandið vel saman
  4. Dreifið nú hnetunum jafnt á bökunarplötu, sætt öðru megin og salt hinu megin
  5. Bakið í 5-10 mínútur eða þangað til hneturnar eru gullnar að lit og ilma
  6. Fylgist vel með til að brenna ekki hneturnar, þær gætu þurft lengri eða skemmri tíma