Hráar Matcha makkarónur með vanillukremi

16 Oct 2017

Þessar makkarónukökur eru dásamlegar góðar og fallega grænar.

 
Makkarónur
  • 1 2/3 bollar kókosflögur
  • 1 msk kókosolía
  • 2 msk hunang
  • 1/2 tsk Bloom Matcha duft
  • 1/4 bolli kasjúhnetur

Vanillukrem

  • 1/2 bolli kasjúhnetur
  • 1/6 bolli möndlumjólk (ca.50 ml)
  • 1/2 tsk vanillu extrakt
  • 1 msk kókosolía
  • 1 msk hunang
Aðferð:
  1. Makkarónur: Malið kasjúhnetur í matvinnsluvél þangað til þær eru orðnar að mjöli. Blandið restinni af innihaldsefnunum saman við og blandið þangað til allt loðir vel saman. Mótið kúlur úr deiginu með höndunum, setjið á disk eða plötu og kælið í ísskáp í u.þ.b. hálftíma.
  2. Vanillukrem: Setjið öll innihaldsefnin í blandara og blandið þangað til kremið er mjúkt og kekkjalaust. Setjið smá krem á hverja makkarónu og berið fram. Best er að leggja kasjúhneturnar í bleyti í a.m.k. 4 klukkutíma áður, þá blandast þær betur. Afgangs krem má nota í eftirrétti í stað rjóma eða búðings.