Heimagerður og ljúffengur Bountyís

22 Nov 2017

Hvernig væri að skella í ljúffengan og um leið hollan Bountyís? Hér er frábær uppskrift frá Kristínu Steinarsdóttur matreiðslumanni.

Innihaldsefni:

  • 4 ½ dl kókos
  • 1 dós Biona kókosmjólk
  • 4 msk kókosolia
  • 4 msk hunang / eða Biona döðlusýróp
  • börkur og safi af 1 lime

Glassúr:

  • 1 ½ dl kasjúnetur
  • 1 ½ dl vatn
  • ½ dl brædd kókosolia
  • 1 st vanillustöng
  • 2-3 msk hunang/síróp

Aðferð:

  1. Hitið kókosmjólk og kókosoliu saman í potti.
  2. Setjið kókosmjöl, hunang, börk og safa af lime I skál, hellið kókosmjólkinni og oliunni yfir, hrærið vel og látið aðeins kólna.
  3. Klæðið kökumót með plastfilmu og þjappið kokoshræinu varlega í mótið og geymið 2-3 tíma í frysti.
  4. Bræðið kókosoliuna fyrir glassur, fræhreinsið vanillustöng og setjið í blender ásamt restinni af hráefnunum.
  5. Takið kökuna út úr frysti og fjarlægið filmuna. Hellið glassúrinu ofan á og setjið smá stund inn í frystir aftur. Skreytið með jarðaberjum.

Umfram allt njótið!