Kollagen bulletproof kakó

19 Apr 2020

María Krista Hreiðarsdóttir aðhyllist lágkolvetnamataræði sem gjörbreytti lífi hennar og heilsufari. Hún hefur tekið inn Feel Iceland kollagen um nokkurt skeið með frábærum árangri. Hér deilir hún uppskrift af yndislegu kollagen bulletproof kakói, sem að er upplagt að fá sér í skammdeginu.

Uppskrift:

  • 1 risastór kaffibolli
  • 2 mæliskeiðar kollagen frá Feel Iceland.
  • 1 msk. Mct-olía frá Now
  • 1 msk. saltlaust smjör eða Gheest
  • 3-4 dropar Now stevía með French Vanilla
  • 1 msk. heilagt kakó frá kako.is 

Aðferð:
Setjið í blandara og þeytið. Njótið með bestu lyst.

 

Heimild: Feeliceland.is