Góðgerlar fastur liður á morgnana - grein eftir Guðrúnu Sortveit

18 Dec 2021

Góðgerlar á morgnana er orðinn fastur liður í rútínunni hjá mér og dóttur minni. Eftir að ég eignaðist dóttur mína fór ég að huga betur að heilsunni og fór að fræða mig meira. Þar á meðal fór ég að skoða góðgerla.

Góðgerlar veita endalaust af góðum ávinningum, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu. Góðgerlar bæta þarmaflóru og stuðla að heilbrigðu jafnvægi baktería í þörmunum. Það er talað um að öll veikindi byrja í meltingarveginum. Þegar maður eignast barn þá fær maður að kynnast því á nýjan hátt hvað melting er mikilvæg eða allavega upplifði ég það þannig. Það kannast eflaust margir foreldrar við það að vera endlaust að pæla í meltingu og hægðum hjá ungabarninu sínu. Góðgerlar geta til dæmis styrkt mótstöðu gegn veikindum og einnig hjálpað börnum með meltingarvandamál, eins og til dæmis kveisu, hægðartregðu og bakflæði. Þarmaflóran spilar nefnilega stórt hlutverk í öllum meltingarvandamálum. Það heillaði mig mikið hvað Optibac er með mikið úrval af góðgerlum, fyrir fullorðna og börn.

Ég nota ýmist Optibac fyrir hvern dag (blár pakki), Optibac fyrir konur (fjólublár pakki) og stundum tek ég Optibac One Week Flat, sem hjálpar til við uppþembu. Mér finnst gott að geta breytt hverju sinni, eftir því hvað mér finnst vanta. Dóttir mín fær annars vegar Optibac duft eða dropana. Síðan er ég spennt að leyfa henni að prófa Optibac góðgerla áxahlaupið þegar hún verður eldri.

Guðrún er 27 ára sjálfstætt starfandi mamma og starfar annars vegar við greinaskrif á lífstílsvefmiðlinum Trendnet, þar sem hún leggur áherslu á förðun, lífstíls- og móðurhlutverkið. Einnig er hún að klára námið sitt í viðskiptafræði eftir fæðingarorlof.