Acure vörurnar eru unnar úr jurtum og náttúrulegri fæðu, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.

Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og flest innihaldsefnin eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án hliðarafurða úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að engar tilraunir á dýrum voru framkvæmdar við þróun á vörunum.