VOR húðvörurnar eru lífrænar húðvörur, án parabena, ilmefna og hormónatruflandi efna. Íslensk náttúra er einstök þegar kemur að hreinleika og gæðum. VOR vörurnar eru unnar úr íslensku vatni, þangi og villtum bláberjum. 

  • Bláberja kremin eru rík af andoxunarefnum og innihalda m.a íslensk bláber og hyaluronic acid sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Henta fyrir konur 30 ára og eldri.
  • Þara kremin eru rík af steinefnum, innihalda mikinn raka og henta fyrir alla aldurshópa, unga húð, karla og konur.
  • Hreinsimjólkin þrífur af andlitsfarða og augnfarða, er mild og ætluð fyrir alla aldurshópa og húðgerðir.
  • Andlitsvatnið er steinefnaríkt með íslenskum þörungum og hentar best fyrir feita húð og bólur.
  • Ávaxtasýrumaskinn er mildur maski til heimanotkunar með jojoba kornum. Endurnýjar yfirborð húðarinnar og frískar húðina upp.