Frábært fyrir liði og stoðkerfi

06 Jan 2016

Ef þú ert stirð(ur) eða með verki í liðum og stoðkerfi þá skaltu íhuga að taka Liðaktín Quatro frá Gula miðanum. Þetta er frábær gæðavara sem hefur fengið mjög góða dóma þeirra ótal mörgu sem hafa notað hana.
 

Liðaktín Quatro inniheldur fjögur virk efni sem vinna einstaklega vel saman fyrir liði og stoðkerfi. Formúlan er úthugsuð af vísindamönnum og inniheldur Kondroitín súlfat, Rose hip ásamt C-vítamíni, Omega 3 fiskiolíu og Hyaluron sýru. 

Kondroitín súlfat er eitt helsta byggingarefnið í liðbrjóski. Verkun kondróítíns í liðum er talin felast í því að það hemji niðurbrotshvata sem geta brotið niður liðbrjóskið og valdið verkjum og skaða. 

Rose hip virkar bólgueyðandi og gefur mjög góða raun sem verkjastillandi þáttur. C-vítamín er öflugt andoxunarefni og hlutverk þess í blöndunni er að vinna gegn bólgum. C-vítamín styður við upptöku á Rose Hip og þessi tvö öflugu efni vinna mjög vel saman. Omega 3 fiskiolía er talin mýkjandi og bólgueyðandi og góð fyrir liði auk þess sem það hefur góð áhrif á marga aðra þætti líkamsstarfsemi s.s. hjarta og æðakerfi. Hyaluron sýra er eitt af megin efnum í liðvökva og gegnir mikilvægu hlutverki til að viðhalda seiglu og sveigjanleika í liðum auk þess sem það byggir upp liðbrjóskið. Með aldrinum minnkar hæfni líkam-ans til að framleiða þetta mikilvæga efni. 

Liðaktín Quatro hentar ekki síður íþróttamönnum einstaklega vel, sérstaklega til að koma í veg fyrir áreynsluáverka á liðum.

LIÐAKTÍN QUATRO

  •     Inniheldur fjögur virk efni gegn sliti í liðum og stoðkerfi
  •     Hentar íþróttafólki sérlega vel 
  •     Án glútens, sykurs, salts og gers
  •     Framleitt samkvæmt GMP staðlinum