CBD olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu) og fjórum mismunandi styrkleikum. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%. Hún inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessari olíu, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).
Verkferlar og geymsla.
CBD innihaldsefnið í Le Pharm olíunni er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practices). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíð pressun án nokkurra aukaefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.
Hrista skal olíuna vel fyrir notkun og nota hana innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma olíuna upprétta utan mikillar birtu og hita. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Framleiðandinn
Framleiðandi Le Pharm olíunnar er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim. www.pharma-hemp.com
Ábending:
Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.