Sæl B.
Takk fyrir spurninguna.
Það er nú þannig að það sem er hollt og gott fyrir einn þarf ekki að vera það fyrir annan.
Svo kölluð holl fæða getur hæglega valdið vandamálum hjá fólki og í því samhengi nefni ég kannski fyrst mjólkurvörurnar.
Þær myndu í orðabók flestra flokkast sem hollusta, en þó eru ótal margir sem geta engan veginn borðað þær sökum óþols.
Mjólkurvörur eru einfaldlega erfiðar fyrir meltinguna enda hæfir kúamjólk kálfum en ekki manneskjum!
Ég segi svona, þér finnst þetta kannski hljóma kjánalega, en auðvitað er þetta rökrétt ekki satt?
Kýr eru jú jórturdýr með 4 maga en við erum aðeins með einn, jórtrum ekki og varla hentar sama fæðan okkur og elskulegu kálfunum.
Bjúgur og uppþemba eru að mínu mati hefðbundin einkenni mjólkuróþols.
Það hefur lengi loðað við að þegar fólk æfir mikið og er duglegt í ræktinni þá borðar það einnig gjarnan mikið af mjólkurvörum, til dæmis skyri. Er það raunin hjá þér?
Ef svo er þá skaltu prófa að sleppa öllum mjólkurmat og sjá hvað gerist.
Það eru auðvitað ótal aðrar fæðutegundir sem geta skapað svona vandamál og um að gera að hlusta á líkamann þegar hann bregst við með einkennum eins og þú lýsir. Ógleði og nábítur eru ekki eðlileg líðan. Endilega slepptu því að borða þá fæðu sem veldur þessari vanlíðan hjá þér.
Þú nefnir líka að þú borðir óreglulega og það eitt og sér er í raun nóg til að setja meltinguna úr jafnvægi. Þá veit hún illa við hverju hún á að búast og hægir gjarnan á sér.
Það sem getur gerst er að framleiðsla á meltingarhvötum, ensímum sýru og galli, sem eru nauðsynleg eðlilegri meltingu minnkar og þá getur gengið illa að brjóta niður fæðuna.
Þetta getur líka valdið miklum uppþembum, ógleði, bakflæðiseinkennum og vanlíðan.
Það er því bráð nauðsynlegt fyrir þig að kippa þessu í lag, reyndu að borða 4 x á dag og ekki mjög stórar máltíðir. Þú gætir líka prófað að fá þér meltingarensím í bætiefnaformi og taka þau með mat. Ég set hugmyndir hér til hægri á síðunni
Ef þér verður óglatt við að taka inn töflur (ég reikna með því að þú sért að tala um einhver bætiefni) þá gæti ástæðan annaðhvort verið sú að þú sért að taka þær á fastandi maga eða þú hreinlega þolir þær ekki. Prófaðu að taka þær með mat og ef það dugar ekki hættu þá alveg að taka þær.
Það væri svo sniðugt fyrir þig að huga aðeins að þarmaflórunni þinni og næra hana með vinveittum meltingargerlum (asídófílus). Það er alltaf gott og getur hjálpað þér að koma lagi á meltinguna.
Ég set hugmyndir af vörum hér til hægri á síðunni.
Gangi þér vel með þetta og ekki hika við að leita þér meiri hjálpar ef þetta ætlar ekki að hafast hjá þér.
Kær kveðja,
Inga næringarþerapisti