Fallegri húð með Beta Karótíni!

22 May 2018

Beta Carotene er andoxunarefni sem tilheyrir flokki karótíníóíða. Það er helst að finna í ýmsu grænmeti og ávöxtum eins og gulrótum, graskerjum, sætum kartöflum, mangó, spínati og grænkáli.

Beta Carotene er öflugt andoxunarefni sem ver frumur líkamans fyrir öldrun. Sjáðu fyrir þér epli. Þú skerð það í helming og innan skamms verður það brúnt. Það er oxun, áhrif andrúmsloftsins á frumur eplisins. Ef þú tekur annað epli, skerð það og kreistir sítrónusafa yfir verður það ekki brúnt. Þarna eru andoxunarefnin í sítrónunni að verki. Þau verja frumur eplisins fyrir oxun og halda því fersku lengur.

Beta karótín gerir það sama fyrir okkur, sérstaklega húðina.
Þeir sem borða mikið af gulrótum eru oft þekktir fyrir fallega húð sem tekur fallegan lit í sól og helst brún lengur. Þarna er beta karótín að störfum. Rannsóknir benda líka til þess að beta karótín geti varið húðina fyrir skemmdum af völdum sólarljóss. Það er þó auðvitað ekki nægileg sólarvörn eitt og sér en getur hjálpað að verja viðkvæma húð. 

Beta karótín er líka þeim kostum gætt að geta umbreyst í A-vítamín í líkamanum.
A-vítamín er okkur lífsnauðsynlegt til ýmissa starfa. Það er t.d. ómissandi fyrir heilbrigði augna og húðar. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir fólk sem er vegan og fær ekki A-vítamín beint úr dýraafurðum.

Beta karótín frá Terranova er ekkert venjulegt beta karótín. Í fyrsta lagi er það náttúrulegt, fengið úr þörungum en ekki búið til á tilraunastofu. Auk þess er í blöndunni annað grænmeti og jurtir sem innihalda beta karótín sem og ýmis önnur næringar- og andoxunarefni. 
Í náttúrunni finnast næringarefni ekki stök og Terranova bætiefnin endurspegla það. Þau innihalda alltaf blöndu sem vinnur vel saman og stuðlar að hámarks nýtingu.

Vegan – án aukaefna – glútenlaust – sykurlaust!