DIY: Heimagert tannkrem

08 Jun 2015

Hér er smá heimaföndur. 

Prófaðu að gera þitt eigið tannkrem!

 

Það eina sem þú þarft að gera er að hræra vel þessi innihaldsefni: 

2 msk. kókosolía

6 msk. matarsódi

10 dropar ilmkjarnaolía (piparmynta er frískandi á meðan tea tree er ótrúlega bakteríudrepandi. veldu þitt bragð.)

1/2 tsk. fínt salt

Sumir bæta smá sætu við. T.d. stevíudropum. 

 

 

Geymist í lokaðri glerkrukku. 

Einfaldara verður það ekki. Náttúrulegt & og laust við öll eitur- og aukaefni. 

Gleðilegt heimaföndur !

 

* Heimild frá www.mindbodygreen.com/