Roll-on á vöðvaverkina - 25% afsláttur

05 Sep 2016

Magnesíum Oil Sport roll-on með piparmyntu og arnicu

Nú er komin ný og frábær magnesíum blanda frá Solaray sem inniheldur magnesíum, piparmyntu, eucalyptus og arnicu.

Það er að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um töfra steinefnisins magnesíum enda hafa jákvæð áhrif þess á sérhverja frumu líkamans verið rækilega rannsakaðar og kynntar. 

Magnesíum oil sport roll-on frá Solaray er einstök blanda þegar kemur að upptöku magnesíum beint í gegnum húðina. Áhrifin má finna samtundis á aumum vöðvum og stirðum liðum. Þess vegna hentar þetta öllum sem eru að koma úr golfinu, göngunni, veiðinni eða annari hreyfingu sem skilur eftir þreytta vöðva og liði.

Þetta er roll-on og því er olíunni nuddað (eða rúllað) beint á húðina og svo má nudda inn eða olían einfaldlega látin liggja á húðinni. Olían gæti skilið eftir sig smá hvíta áferð sem auðvelt
er að dusta af.

Það sem þetta gerir fyrir líkamann er að blandan mýkir auma vöðva, minnkar líkur á sinadrætti, er kælandi og jafnvel verkjastillandi.

Magnesíum oil sport roll-on er ekki bara magnesíum því þetta er alveg einstök blanda af magnesíum, piparmyntu og arnicu. Arnica er þekkt fyrir náttúrulega verkjastillandi eiginleika sína og hafa rannsóknir sýnt að jurtin hefur mjög góð áhrif á auma vöðva. Þá virkar hún líka vel á marbletti ásamt því að minnka bólgur. Piparmyntan er svo kælandi og jafnframt mjög virk á auma vöðva. Þetta er því frábær blanda sem óhætt er að mæla með. Þeir sem hafa prófað trúa vart eigin upplifun, svo vel
virkar efnið.

Solaray er frumkvöðull í framleiðslu blandaðra jurta og er í dag eitt vinsælasta og best þekkta vörumerkið í bætiefnum. Solaray hefur öðlast góðan orðstír fyrir gæði, samkvæmni og virkni og viðskiptavinir Heilsuhússins vita hversu góðar vörurnar frá Solaray eru. Meðal annars vegna þess að Solaray er þekkt á meðal þeirra sem velja hágæða vitamín og bætiefni.