Súper blanda!

03 Apr 2018

Æterna Gold Collagen drykkur frá Higher Nature er hágæða vatnsrofið fiskikollagen ásamt hyaluronicsýru og C-vítamíni. Veitir húðinni fallegra yfirbragð, aukinn ljóma og minnkar línur.

Ljómaðu að utan sem innan!
Nauðsynlegt er að næra húðina innanfrá og þessi einstaka vara frá Higher Nature hefur það einmitt að markmiði. Hún byggir upp og inniheldur náttúruleg næringarefni, sem stuðla að heilbriðri og fallegri húð. 

Kollagen er það prótein sem er eitt helsta uppbyggingarefni húðarinnar og er líka nauðsynlegt til að halda beinum og liðum sterkum og heilbrigðum. Kollagen hjálpar okkur einnig að viðhalda lengur sléttri og fallegri húð. Það er að finna í þykkasta lagi húðarinnar og hlutverk kollagens er að að viðhalda bæði styrk og teygjanleika húðarinnar. Með aldrinum minnkar virkni þess en talið er að við missum um 1,5% af kollageni á hverju ári eftir 25 ára aldur.

Vatnsrofið kollagen getur jafnframt örvað kollagen framleiðslu líkamans. Þá er hyaluronic sýra mjög mikilvæg til að halda raka í húðinni og ekki síður til að smyrja liðina. C-vítamín er svo nauðsynlegt fyrir kollagen framleiðslu líkamans auk þess að vera öflugt andoxunarefni sem ver húðina gegn öldrun.

Æterna Gold Collagen drink

  • Inniheldur Hyaluronicsýru
  • Inniheldur C-vítamín
  • Dregur úr húðlínum
  • Eykur húðljóma
  • Nærir húðina innanfrá
  • Gott fyrir liðina