Túrmerik getur hjálpað gegn hinum ýmsu kvillum, allt frá meltingartruflunum upp í gigtarsjúkdóma. Við hvetjum lesendur til þess að kynna sér betur ótrúlega virkni túrmeriks á líkamann.
Turmerik fæst sem fæðubótarefni (virka efnið heitir curcumin), í hylkjum og dropum í Heilsuhúsinu, en einnig er hægt að útbúa sér sitt eigið bætiefni á einfaldan hátt.
Golden túrmerik paste er einföld viðbót við mataræði manna og einnig dýra, sem getur hjálpað til við gigtar- og liðvandamál. Má borða eitt og sér að setja út í smoothie eða mat. Þá er gullslegna túrmerik teið bæði meinhollt og dásamlega bragðgott.
TÚRMERIK GULLSLEGIÐ TE
Þessi léttkryddaði drykkur svipar til chai te í bragði og er stútfullur af bólgueyðandi og andoxunarefnum, þökk sé pipraða túrmerikinu. Smá sletta af hunangi gefur akkúrat rétta sætumagnið, á meðan engifer og svartur pipar setja smá bit í drykkinn.
Hentar fyrir tvo.
Innihald:
- 1 bolli ósæt jurtamjólk, helst kókos- eða möndlumjólk
- 1 stk kanilstöng
- 1 stk túrmerik, um 2,5 sm, skorin þunnt, eða 1/2 tsk túrmerik duft.
- 1 stk engifer, um 1-1,5 sm, þunnt skorin
- 1 msk hunang
- 1 msk virgin kókosolía
- 1/4 tsk svartur pipar, heil korn
- 1 bolli vatn
- kanil duft til skreytingar
Aðferð:
- Hrærið saman mjólk, kanilstöng, túrmerik, engifer, hunang, kókosolíu og piparkorn út í vatn í potti. Hitið upp að rólegri suðu.
- Lækkið hitann og leyfið að malla í 10 mínútur. Hellið í bolla í gegnum sigti og skreytið með smá kanildufti.
- Hægt að geyma í allt að fimm daga í ísskáp í loftþéttum umbúðum. Hitið þá fyrir neyslu.
Ef túrmerik duft er notað þarf að hræra í bollanum því duftið á það til að setjast á botninn.
Golden túrmerik paste – einfalt að búa til:
- 125 ml túrmerik frá Sonnentor
- 250 ml vatn
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar (má sleppa fyrir dýrin)
- 70 ml kaldpressuð kókosolía frá Biona
Hrærið öllu saman.