GRÆÐIR inniheldur öfluga blöndu af handtíndum, villtum, íslenskum lækningajurtum samkvæmt gamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu Sóleyjar í margar kynslóðir.
Berið GRÆÐIR græðismyrsl með fingurgómunum á svæðið sem þarf að græða og nuddið gætilega inn í húðina. Bestur árangur næst ef kremið er borið vel á að morgni og að kvöldi.
Notið spaða til að ná GRÆÐIR úr krukkunni og velgið kremið í lófanum áður en það er borið á.