Better You D-LUX 1000 munnúði 15 ml.

Better You

Vörunúmer : 10112765

D-vítamín úði undir tungurót. Gott bragð og einfalt að gefa krökkum.


1.999 kr
Fjöldi

D Lux 1000 (og D Lux 3000) eru fyrstu D-vítamínin á markaðnum sem eru í munnúðaformi.  Með því að spreyja þvi undir tungu eða út í kinn, er upptakan tryggð því það seytlar gegnum slímhúðina og beint út í blóðrásina.

Ábyrgðaraðili: Artasan ehf.

D vítamínskortur er afar algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma og skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi og sterkar tennur og bein.  Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D vítamínskorti.

Í gegnum þróunarsöguna hefur sólin verið meginuppspretta D vítamíns en í dag þegar fólk notar meiri sólarvörn, forðast sólina eða býr þar sem ekki er næg sól er skortur á D vítamíni mjög algengur.  Íslendingar fara ekki varhluta af sólarleysinu og því er það sérlega mikilvægt að við pössum uppá að taka inn D vítamín.

D 1000 er afar handhægt og bragðgott og börnin elska það;

  • Vítamínið fer beint út í blóðrás í stað þess að fara í gegnum meltingarveginn.
  • Skammtakerfi sem skammtar 1000IU í hverjum úða.
  • Fyrir alla sem vilja meira magn í einum úða.
  • Í hverju glasi eru 100 úðar eða um 3ja mánaða skammtur.
  • Gott, náttúrulegt piparmyntubragð.
  • Hentar grænmetisætum.
  • Fyrir alla sem hafa áhyggjur af skorti á sólarljósi.
  • Hentar öllum aldri.


Þeim sem hættast er við D vítamínskorti eru:

  • Ófrískar konur og konur með barn á brjósti.
  • Einstaklingar komnir yfir fimmtugt.
  • Börn yngri en 5 ára.
  • Fólk sem heilsu sinnar vegna verður að vera innan- dyra eða þeir sem hylja húð sína þegar þeir fara út.
  • Grænmetisætur sem borða ekki feitan fisk.
  • Fólk með dökkt litaraft.

Purified water, xylitol (natural sweetener), acacia gum, cholecalciferol (vitamin D3 in coconut oil), sunflower lecithin (tricalcium phosphate, rice flour), citric acid, natural preservative: potassium sorbate, peppermint oil.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

2 fyrir 1

Schar Bagels 400 gr.

Vrn: 10163574
968 kr

Nýjar vörur