Prógastró Gull mjólkursýrugerlar 60 hylki

Prógastró

Vörunúmer : 10143236

Prógastró gull mjólkursýrugerlar bæta þarmaflóruna og eru góðir gegn meltingarvandamálum, ónotum, uppþembu, erfiðum hægðum, sveppasýkingum, húðvandamálum og andlegri vanlíðan.


5.499 kr
Fjöldi

Prógastró GULL innheldur 15 milljarða góðgerla og dugar einungis eitt hylki á dag en í glasinu er 2 mánaða skammtur.

Heilbrigð þarmaflóra – heilbrigt líf
Meginþorri heilbrigðra einstaklinga hafa svipaða þarmaflóru en hún er að þróast og dafna hjá okkur alla ævi. Nýlegar rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að samsetning  þarmaflórunnar breytist með aldrinum. Helst er talið að breytingarnar stafi af því að meltingin versni með aldrinum og fyrir vikið eigi gerlarnir erfiðar uppdráttar í þörmunum. Þarmaflóran ver okkur gegn óæskilegum örverum  og hefur margskonar áhrif á heila- og taugakerfið, þar með talið geðheilsu.  Öflug og rétt samsett þarmaflóra er grunnurinn að sterku ónæmiskerfi og oftar en ekki er hægt að rekja ýmsa líkamlega sem og andlega veikleika til lélegrar þarmaflóru.

Ástæður þess að þarmaflóran okkar raskast má meðal annars rekja til inntöku sýklalyfja, mikils álags og streitu, neyslu á sykri og unnum matvörum, mikilli kaffidrykkju og fleiri lífsstílstengdra þátta.

L. acidophilus DDS®-1 mikilvægastur
Góðir gerlar (probiotics) finnast í gerjuðum mat eins og súrkáli, jógúrti, kefir og kombucha en einnig er hægt að fá þá í hylkum.  Prógastró mjólkursýrugerlarnir eru afar öflugir en þarna eru fjórar tegundir gall og sýruþolna gerlastofna. Einn af þeim er L. acidophilus DDS®-1 en þetta er nafn á mjög áhrifaríkum gerlastofni þar sem „DDS®-1 viðbótin“ er afar mikilvæg. Það þýðir ekki bara að þeir þola hátt sýrustig í maganum, heldur margfalda þeir sig í þörmunum. L. acidophilus DDS®-1 er talin gagnlegur fyrir alla aldurshópa og benda rannsóknir einnig til þess að þessi gerillinn bæti almennt heilsufar fólks þar sem hann:

  • Aðlagast líkamsstarfseminni vel
  • Er gall og sýruþolinn
  • Bætir meltingu
  • Hjálpar til við styrkingu ónæmiskerfisins
  • Stuðlar að betra jafnvægi þarmaflórunnar
  • Framleiðir verulegt magn af laktasa sem getur hjálpað gegn laktósaóþoli

Dr. Mercola segir „Ég er viss um að L. Acidophilus DDS-1 er einn af mikilvægustu gerlastofnunum í  virkum góðgerlum á bætiefnaformi“

Gæðin skipta máli
DDS + er einn öflugasti asídófílus á markaðnum. Hann er sýru og gallþolinn, lifir lengi í meltingunni og margfaldar sig í smáþörmunum.

Gall og sýruþolnir gerlar – hvað þýðir það?
Próbíótískir gerlar, sem okkur langar að kalla góðgerla, eiga mjög erfitt með að lifa af í háu sýrustigi sem er í maganum, en NB! maginn á að vera súr. Þörfin fyrir góðgerlana er í smáþörmunum og því þurfa þeir að lifa af ferðina í gegnum súra magann. Dr. S.K Dash hefur þróað tækni sem gerir alla hans gerla sýruþolna.

Hvernig er best að taka inn Prógastró GULL
Eitt hylki á morgnana með 1 glasi af volgu vatni. Leyfa allavega 10 mín að líða áður en morgunmatur er borðaður. Auka má dagskammt  upp í 3 hylki á dag við sérstökum meltingakvillum og þá að dreifa því yfir daginn.  Það reynist sumum vel að taka hylki fyrir svefninn líka.

PRÓGASTRÓ  GULL góðgerlarnir eru áhrifaríkir m.a. fyrir þá sem þjást af:

  • kandítu
  • uppþembu
  • sveppasýkingu
  • niðurgangi
  • harðlífi
  • magakrampa
  • bakflæði
  • mjólkuróþoli
  • fæðuóþoli
  • exemi
  • háu kólestróli
  • vægri matareitrun

Magn: 60 töflur

Það eru 4 tegundir af góðgerlum í  Prógastró GULL sem eru gall og sýruþolnir: L acidophilus DDS-1,B longum,B bifidum og B lactis.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur

2 fyrir 1

Mádara Deep Moisture gel 50ml.

Vrn: 10120806
5.549 kr