Teapigs te eru einstök og í tepokunum þeirra eru eingöngu heil lauf, eða eins og þau segja sjálf upp á enskuna „no more dust“. Tepokarnir frá Teapigs hafa frá upphafi verið plastlausir, þar sem þeir eru úr kornsterkju sem er 100% lífkleyfanleg (biodegradable) og má fara í lífrænt rusl, þó það sé ekki mælt með að setja þá í heimilismoltuna þar sem þeir þurfa hærra hitastig til að brotna niður. Til að halda tepokunum ferskum í pakkanum er þeim pakkað í glæran poka sem er unninn úr efni sem kallast Natureflex, sem er gert úr trjákvoðu, svo það er 100% plöntuefni og endurvinnanlegt í lífrænum úrgangi. Pakkarnir sjálfir eru síðan úr pappa og prentaðir með bleki unnu úr grænmeti.
Innihaldslýsing: Lífrænt japanskt matcha (100%). Inniheldur mikið kaffín.