Herralína frá Benecos

05 Feb 2018

Herralínan frá Benecos hentar herramönnum á öllum aldri. Vörulínan er vegan og inniheldur engin skaðleg ertandi efni. Lífrænar olíur og jurtir eru hér í aðalhlutverki til að næra og mýkja.

Benecos herra líkamssápa 3 í 1

Frábær lífræn sápa sem hægt er að nota í hárið, andlitið og á líkamann. Sápan er mild og laus við ertandi efni, hreinsar vel en nærir húðina á sama tíma.

  • Lífræn
  • Mild
  • Hreinsar vel
  • Einfaldar lífið – má nota í hár, á líkama og andlit
  • Vegan
  • Ferskur ilmur

 

Benecos herra svitalyktaeyðir

Lífrænn svitalyktareyðir án allra skaðlegra efna eins og parabena og áls. Heldur líkamslykt í skefjum en leyfir húðinni á sama tíma að anda. Einstök blanda jurta og ávaxta gefur ferskan en mildan ilm.

  • Lífrænn
  • Án parabena og áls
  • Endist lengi
  • Ferskur ilmur
  • Vegan

 

 

Benecos skeggolía

Djúpnærandi blanda sem nostrar við skeggrótina og kemur í veg fyrir kláða, roða og ertingu. Argan olía, mönduolía, lavender, rósmarín og morgunfrú eru hin fullkomna blanda til að næra og mýkja bæði skegg og húð.

  • Lífrænar olíur
  • Mýkir og nærir
  • Róar húðina
  • Náttúrulega sótthreinsandi
  • Kemur í veg fyrir flösu
  • Styrkir hárvöxtinn
  • Vegan

Notkun:
Best er að bera olíuna á hreina húð, meðan hún er enn heit og rök svo að olían smjúgi sem best inn. Setjið nokkra dropa í lófann, nuddið saman og nuddið vel í skegg og húð. Ekki skola af.

Benecos Herra andlitskrem

Náttúrulegt andlitskrem án allra ertandi efna. Frábært rakakrem til að nota á hverjum degi eða eftir rakstur. Lífrænar olíur og aloe vera djúpnæra húðina án þess að gefa feita áferð.

  • Létt, milt og nærandi
  • Kælir og róar húðina
  • Frábært eftir rakstur
  • Þægilegur ilmur
  • Gerir húðina ekki feita