Frábært úrval á umbúðalausri þurrvöru í Heilsuhúsinu í Kringlunni

11 Jun 2019

Heilsuhúsið hefur hafið sölu á umbúðalausri matvöru og geta viðskiptavinir Heilsuhússins í Kringlunni nú keypt þurrvöru og sett beint í eigin ílát eða aðrar umhverfisvænar umbúðir.  

Heilsuhúsið hefur hafið sölu á umbúðalausra þurrvöru til að draga úr umhverfissóun.Til að byrja með verða umbúðalausu vörurnar sem koma allar frá Sólgæti til sölu í Heilsuhúsinu Kringlunni en ef þjónustan mælist vel fyrir verður boðið upp á umbúðalausar vörur í fleiri verslunum Heilsuhússins.

Viðskiptavinir eru hvattir til að koma með eigin ílát og fylla á haframjölið, hrísgrjónin, chia fræin, þurrkuðu jarðarberin og svo margt fleira en yfir 30 vörutegundir eru í boði og allar lífrænt ræktaðar. Fyrir þá sem það kjósa verða pappírspokar einnig í boði.

Vörur sem fást í umbúðalausri þurrvöru frá Sólgæti:

  • Þurrkaðar apríkósur
  • Fíkjur
  • Frost þurrkuð jarðaber
  • Kanilhúðaðar möndlur
  • Medjoul döðlur
  • Mjúkir kókosbitar
  • Súkkulaði húðaðar möndlur
  • Sykrað engifer
  • Þurrkað mangó
  • Þurrkuð epli
  • Sætt trönuber
  • Basmati hýðishrísgrjón
  • Brasilíuhnetur
  • Chiafræ
  • Dahl linsur
  • Goji ber
  • Haframjöl fínt
  • Haframjög gróft
  • Hampfræ
  • Hirsi
  • Kasjúhnetur
  • Kínóa
  • Kjúklingabaunir
  • Mórber
  • Mungbaunir
  • Nýrnabaunir
  • Ofurfæðublanda
  • Ristaðar og saltar kasjúhnetur
  • Rúsínur 
  • Tamari hnetur og fræblanda
  • Þurrristaðar möndlur
  • Mórber

Heilsuhúsið hefur um nokkurt skeið boðið umbúðalausar hreinlætisvörur eða áfyllingar, til að mynda í þvottaefnum og sjampói sem og tannkremstöflur svo fátt eitt sé nefnt. Það er mikilvægt að auka framboðið af umbúðalausri vöru og minnka þannig plastnotkun. Umhverfismál, heilsa og lífrænt ræktaðar vörur hafa verið starfsfólki Heilsuhússins hugleikin frá opnun eða í 40 ár og teljum við þetta mikilvægt skref til að draga úr óþarfa umbúðum og gefa viðskiptavinum kost á að stýra fullkomlega því magni sem hann kaupi.