Bee's Wrap var stofnað í Vermont í Bandaríkjunum árið 2012 af konu, sem eins og svo mörg okkar, var að leita að umhverfisvænni leið til að vernda og geyma matvæli. Hún gróf upp gamla aðferð sem fól það í sér að nota býflugnavax með bómullardúk til verksins en útfærði þá aðferð svo enn frekar með því að bæta við jójóbaolíu og trjákvoðu og bætti við í réttum hlutföllum til að gera örkina enn meðfærilegri.