Friendly soap er lítið handverksfyrirtæki í Bretlandi sem framleiðir sápur með hreinni samvisku. Markmið þeirra og hugsjón er að framleiða sápur sem hafa eins lítil skaðleg áhrif á náttúruna og heilsu fólks og framast er unnt. Starfsemin miðast að því að starfa að heilindum þar sem siðferði, umhverfið og náttúran er framar í röðinni en hagnaður. Sápur með hreina samvisku.

Allar sápurnar okkar eru án; Pálmaolíu, paraben, súlfats, tríklósan, phthalate (þalöt), já og grimmdar. Umbúðir þeirra eru úr endurunnum pappír, án plasts og þær má endurvinna aftur. Friendly sápurnar eru jafnframt skráðar og samþykktar hjá: The Vegan Society, Cruelty Free International og fá hæstu einkun hjá The Ethical Consumer.