Lavera er þýskt snyrtivörumerki sem hefur verið á markaðnum í yfir 35 ár. Vörumerkið framleiðir hágæða og náttúrulegar snyrtivörur, hárvörur, líkamsvörur og förðunarvörur. Hver húðgerð hefur sína línu og eru þær allar lífrænt vottaðar.
Meirihluti varanna hefur vottaðan vegan stimpil. Allar vörurnar eru lausar við Paraffin, Silicon og Mineral Olíu. Aðeins 100% náttúruleg ilmefni, olíur og önnur plöntuþykkni eru notuð í vörunum. Lavera prófar vörurnar sínar ekki á dýrum.