Íslenskir blómadropar 10 ml. #einbeitni

Íslenskir blómadropar

Vörunúmer : 10084089

Eflir fókus, einbeitingarhæfileika og skerpir athygli. Hjálpar okkur að muna leiðina okkar, sjá hver leiðin er og lifa hana. Einbeitni blandan hjálpar okkur að sjá skýrt fyrir okkur þá leið sem æðri máttur leiðir okkur og skilja enn betur samhengi hlutanna. Sálarkjarninn jarðtengir sig í huga okkar og sest í sæti sitt í ennisstöðinni. Góð þegar hugurinn getur ekki stoppað og einbeitingin er út og suður, þegar við erum áttavillt og ringulreið ríkir í huganum. Þessi blanda eflir tengingu við alheimssálina.


1.698 kr
Fjöldi

Þú hristir flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir tunguna  4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað 2-3 blómadropaflöskur í einu. (Gættu þess að láta dropa-teljarann ekki komast í snertingu við munninn.) Þessi aðferð hefur áhrif á yfirborðstilfinningar dagsins. Einnig er gott að setja blómadropa út í vatnsglas, te, vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt.

Ekki er nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíkn hjá óvirkum alkahólistum en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka þá inn  með vatni. Blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.