Mý frí inniheldur 5 tegundir ilmkjarnaolía sem allar hafa mikla virkni gegn flugum og skordýrum.
Ilmkjarnaolíurnar vinna vel saman að markmiðinu, að fæla flugurnar frá, en bónusinn er að blandan ilmar einstaklega vel… fyrir okkur mannfólkið það er að segja.
Notkunarmöguleikar:
- Á húð, blönduð í olíu t.d. kókos eða möndlu
- Í sprey sem nota má inni og úti
- Óblönduð í opnanlega glugga og í gluggakistur
- Í bómull eða annað og setja í rúmið fyrir svefninn.
- Í sokkana í kringum ökklana og fremst á ermar við úlnliðinn (ath gætu komið blettir á einstaka flíkur)
- Í hárbönd og teygjur
- Í ilmlampa
Lemon Eucaliptus,lavender, rosmarin, lemongrass, basil