Solaray var stofnað árið 1973 og er í dag einn virtasti bætiefnaframleiðandi í Bandaríkjunum. Merkið stendur fyrir gæði og heiðarleika. Allar vörur fara í gegn um strangar gæðaprófanir og innihalda bara það sem stendur á miðanum. Línan er mjög breið og skiptist niður í nokkra flokka sem má þekkja á lit loksins. Solaray vítamínin eru vottuð samkvæmt GMP gæðavottunarkerfinu.
Hvíta lokið - Inniheldur öll almenn bætiefni. Vítamín, steinefni og ýmsar bætiefnablöndur.
Bláa lokið - Fyrsta línan sem Solaray framleiddi. Jurtablöndur ásamt hómópatasöltum.
Fjólubláa lokið - Jurta extrakt. Virku efnin úr jurtinni einangruð að ákveðnum styrkleika úr plöntuhlutanum.
Græna lokið - Jurtabætiefni úr heilum jurtum. T.d. unnið úr rót, stöngli og blómum.
Svarta lokið - Ayurvedískar jurtir. Úr indversku lækningahefðinni.
Gula lokið - Lífrænt ræktaðar jurtir án aukaefna.