Jurtir hafa frá fornu fari verið notaðar til lækninga. Villimey gætir þess í hvívetna að velja villtar jurtir sem vaxa í næringarríkum jarðvegi og fá hreint loft og tært vatn, þannig að bestu eiginleikar og einstök virkni nýtist til fullnustu. Allar vörur frá Villimey eru unnar úr villtum íslenskum jurtum sem eru handtíndar í hreinni náttúru Vestfjarða þegar virkni þeirra er hvað mest. Vörurnar frá Villimey eru lífrænt vottaðar af Vottunarstofunni Túni. Þær eru 100% lífrænar og án allra rotvarna-, ilm- og litarefna.