Acure Essentials Moroccan Arganolía 30 ml.

Acure

Vörunúmer : 10169860

Hrein, kaldpressuð argan olía, hentar vel fyrir allar húðgerðir.


2.398 kr
Fjöldi

Hrein, kaldpressuð argan olía, hentar vel fyrir allar húðgerðir.

Hrein ofurfæða fyrir húðina. Argan olía er ótrúlega rík af E vítamíni, lífsnauðsynlegum fitusýrum og próteinum og hún hjálpar til við að endurnýja áferð og tón húðarinnar. Notist sem hárgljái og andlitsserum og nuddolíu fyrir andlit niður að hálsmáli, fyrir hendur og sem naglabandaolíu og til að bera á þurra olnboga og hæla. Létt olía sem vinnst auðveldlega inn í húðina. Argan olía er oft kölluð fljótandi gullið, svo endilega fáðu þér smá fegurðar bling fyrir húðina sem færir henni rakakenndan ljóma.

Argan olían er náttúruleg, hrein og lífræn og umbúðirnar eru vistvænar.

Í Acure vörurnar fer bara það besta.

Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.

Berið smávægilegt magn í lófa, nuddið höndum saman, berið svo jafnt lag á það svæði sem þið viljið vinna með. Ef olían er notuð í hár er gott að vinna hana út hárendana.

ARGANIA SPINOSA (ARGAN) KERNEL OIL*. *ORGANIC INGREDIENT