Vörunúmer : 10150796
Bólgueyðandi krem úr íslenskum haugarfa. Hentar vel fyrir þreytta fætur og sprungna hæla. Inniheldur piparmintuolíu, tea tree olíu og laxerolíu. Gott að nudda smá stund fæturna og fara svo í góða sokka. Tea tree olían er sveppa- og bakteríudrepandi, piparmyntan kælir og dregur úr þreytu og laxerolían er bólgueyðandi. Einnig er í þessu kremi Shea butter sem er græðandi m.a. fyrir þurra húð og sprungna hæla.