Iceherbs Collagen liðamót 120 hylki

Iceherbs

Vörunúmer : 10160480

Öflug blanda fyrir liði. Íslenskt kollagen ásamt túrmeriki og magnesíum með viðbættu c-vítamíni og svörtum pipar. Þessi öfluga blanda Collagen liðamót, inniheldur íslenskt kollagen úr fiskroði, túrmerik og magnesium citrate.  Einnig er svartur pipar sem eykur upptöku túrmeriks og c-vítamín sem tekur þátt í myndun kollagens í líkamanum.


3.299 kr
Fjöldi

Kollagen styrkir vefi líkamans og sér til þess að þeir haldist sterkir. Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans, en það er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum. Kollagen er eitt af þeim efnasamböndum sem eru húð okkar mikilvægust. Það bindur raka og sér til þess að húðin viðhaldi frískleika sínum og teygjanleika. Orðið collagen kemur upphaflega úr grísku þar sem “colla” merkir lím og “gen” að framleiða.

Líkaminn framleiðir sjálfur kollagen, en um 25 ára aldur hægist hratt á framleiðslunni með hverju árinu. Þegar kollagen framleiðslan minnkar byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunareinkennum, svo sem verkjum í liðum og liðamótum. Einnig byrja að myndast hrukkur og teygjanleiki í húð minnkar. Með inntöku á kollageni hægir á öldrun húðarinnar. Það er rakagefandi, kemur í veg fyrir hrukkumyndun og getur jafnvel minnkað þær sem þegar hafa myndast. Einnig hefur kollagen mjög góð áhrif á hár og vöxt þess, en það hefur meðal annars bætt hárlos, skallabletti og líflaust hár.

Með því að taka inn kollagen í formi fæðubótaefnis, örvum við aðra framleiðslu líkamans á próteini sem hjálpar til við að viðhalda uppbyggingu vefja líkamans.

Í hverjum skammti eru 1000 mg. af kollageni. 

Virka efnið í Turmerik er curcumin og hafa rannsóknir sýnt að bólgueyðandi áhrif þess séu ekki síðri en mörg bólgueyðandi lyf. Aðrir kvillar sem túrmerik hefur verið þekkt fyrir að hafa góð áhrif á eru liða-, slit og þvagsýrugigt, liðverkir, magabólga, magasár, vindverkir og ristilkrampi. Svartur pipar eykur upptöku túrmeriksins og margfaldar hann því áhrifin. Í blöndunni er einnig magnesíum citrate sem er nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvaslökun og heilbrigt taugakerfi. Það virkar gegn svefntruflunum,  fótaóeirð og stuðlar að eðlilegri virkni vöðva og tauga.

Þessi blanda er gríðarlega öflug.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

  • Takið 3 hylki á dag með vatni.
  • Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
  • Geymið þar sem börn ná ekki til.

Varan inniheldur 120 hylki.

Hvert hylki inniheldur: 

  • Collagen peptides 350 mg.
  • Túrmerik 70 mg.
  • Magnesíum citrate 35 mg.
  • C- vítamín 8 mg.
  • Svartur pipar 2 mg.
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

2 fyrir 1

Schar Bagels 400 gr.

Vrn: 10163574
968 kr

Nýjar vörur