Fjallagrös eru viðurkennd lækningajurt, bæði meðal Íslendinga og margra annarra þjóða. Þau hafa verið mikið notuð til lækninga og í matargerð öldum saman. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, Lichenin og Isolichenin, sem mynda mýkjandi himnu á slímhúð í maga og draga þannig úr særindum, bæta meltinguna og mýkja hægðirnar.
Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsuvörur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.
Takið 2-3 hylki á dag með vatni, en munið að fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
Munið að fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
Flóra innihalda mulin fjallagrös, kísil og magnesíumsterat. Hylkin eru úr jurtabeðmi.
Hvert hylki inniheldur: Fjallagrös, 400 mg.