Ávaxtadropinn kaldpressuð jómfrúarolía 500 ml.

Búkona

Vörunúmer : 10163562

Búkonuolían er unnin úr fyrsta flokks ólífum frá Extremadura-héraðinu á Spáni sem frægt er fyrir landbúnað. Olían er framleidd hjá fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1942 og hefur hún hlotið fjölda verðlauna. Allar olíurnar frá Búkonu eru kaldpressaðar jómfrúarolíur (e. extra virgin) og er það hæsti gæðaflokkur. Ólífuolíurnar má nota í alla matargerð og einnig til steikingar, en þá á að hita hana hægt.
Ávaxtadropinn er kaldpressuð úrvalsjómfrúarolía, unnin úr morisca-þrúgunni. Morisca-þrúgan er upprunnin í Extremadura-héraðinu á Spáni og er ein mest ræktaða ólífuþrúgan á svæðinu.


2.147 kr
Fjöldi

Bragð olíunnar ber keim af þroskuðum quince-ávöxtum, anís, fíkjum og eplum. Margslungið bragð hennar einkennist því fyrst af sætleika, þá kallast milt rammt bragð á við milt piparbragðið, en eftirbragð olíunnar hefur ríkan keim af þroskuðum ávöxtum.

Olían er tilvalin á salatið