Íslenskir blómadropar 10 ml. #alheimskærleikur

Íslenskir blómadropar

Vörunúmer : 10079211

Veitir aukið traust; opnar hjartað fyrir gegnumstreymi kærleikans; hjálpar okkur að fyrirgefa okkur sjálfum og öðrum, að finna að allir hlutir hafa sinn tilgang þótt við sjáum hann ekki alltaf; blandan kemur á jafnvægi milli hins innra og ytra og gerir okkur betur kleift að upplifa kærleika til alls sem er. Gott að taka inn við djúpstæðum sársauka sem tengist einstaklingum og  hópum, t.d. niðurlægingu, vonleysi og svartnætti tilfinninganna. Kemur á jafnvægi í hjartastöð II.


1.698 kr
Fjöldi

Þú hristir flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir tunguna  4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað 2-3 blómadropaflöskur í einu. (Gættu þess að láta dropa-teljarann ekki komast í snertingu við munninn.) Þessi aðferð hefur áhrif á yfirborðstilfinningar dagsins. Einnig er gott að setja blómadropa út í vatnsglas, te, vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt.

Ekki er nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíkn hjá óvirkum alkahólistum en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka þá inn  með vatni. Blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

2 fyrir 1

Schar Salted Caramel Cookies 150 gr.

Vrn: 10163577
919 kr

Nýjar vörur