Þú hristir flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir tunguna 4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað 2-3 blómadropaflöskur í einu. (Gættu þess að láta dropa-teljarann ekki komast í snertingu við munninn.) Þessi aðferð hefur áhrif á yfirborðstilfinningar dagsins. Einnig er gott að setja blómadropa út í vatnsglas, te, vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt.
Ekki er nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíkn hjá óvirkum alkahólistum en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka þá inn með vatni. Blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.