Guli miðinn Króm Píkólínat 90 töflur

Guli miðinn

Vörunúmer : 10054449

Króm getur haft áhrif á í blóðsykurstjórnun líkamans. Mörgum finnst það jafna orkuna og draga úr sykurlöngun. Króm sem pikolínat er auðupptakanlegt og nýtist almennt vel.

Styrkleiki: 200mcg

1.599 kr
Fjöldi
  • Króm er snefilsteinefni
  • Króm á meðal annars þátt í blóðsykursstjórnun líkamans
  • Króm er einnig nauðsynlegt fyrir orkubúskap líkamans vegna hlutverks þess í efnaskiptum glúkósa
  • Króm er einnig mikilvægt í efnahvörfum kólesteróls, fitu og próteina.
     

Það er einnig mikilvægt í efnahvörfum kólesteróls, fitu og próteina. Þetta ómissandi snefilefni stuðlar að stöðugu blóðsykurmagni með því að bæta nýtingu insúlíns. Slíkt getur komið sér vel bæði hjá fólki með sykursýki og blóðsykurskort, en það skyldi þó haga inntöku króms í samráði við lækni. Króm hefur verið notað með góðum árangri til að hækka góða kólestrólið (HDL), lækka vonda kólesterólið (LDL) og lækka blóðsykur í blóði. Það er einnig talið hindra slagæðastíflur og hjartasjúkdóma ásamt því að auka virkni ónæmiskerfisins. Rannsókn sem gerð var á einstaklingum með unglingabólur leiddi í ljós að þeir unnu ekki úr sykri á fullnægjandi hátt. Einn þeirra sem að rannsókninni stóð vild ganga svo langt að líkja gelgjubólum við ,,sykursýki húðar. Talið er að króm geti haft góð áhrif á húð sumra þeirra einstaklinga sem kljást við gelgjubólur.

Króm, einkum í formi króm pikkólínats, getur minnkað sykurlöngun, hvetur til þyngdartaps og uppbyggingar vöðva og er því mikið notað bæði af einstaklingum í megrun og þeim sem stunda íþróttir. Hærra hlutfall vöðva eykur getu líkamans til að brenna fitu. Íþróttamenn þurfa mun meira magn af krómi en aðrir, þar sem áreynsla eykur útskilnað þess margfalt. Í bókinni ,,Hættum að eldast er þeirri kenningu varpað fram að króm stuðli að langlífi og hægi á öldrun. Þar segir að ómögulegt sé að fá nægilegt króm úr fæðunni einni saman. Króm nýtist líkamanun best í forminu krómíum pikkólínat.

Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.

  • 1 tafla á dag með mat.
  • Magn: 90 töflur
  • Skammtastærð: 3 mánuðir

Innihald í 1 töflu:
Króm (chromium picolinate) 200mcg.

Önnur innihaldsefni:
Dicalcium phosphate, microcrystalline cellulose, croscarmellose sodium, stearic acid, silicon dioxide, magnesium stearate.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur

2 fyrir 1

Íslenskir blómadropar 10 ml. #Travel ease

Vrn: 10103241
1.698 kr