Guli Miðinn er breið lína vítamína og bætiefna sem hafa verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 25 ár. Vörulínan býður upp á mikið úrval vítamína, steinefna og annarra bætiefna sem eru þróuð og valin sérstaklega með þarfir Íslendinga í huga. Vörurnar eru framleiddar samkvæmt Evrópskum stöðlum um magn innihaldsefna og hámark leyfilegra dagskammta. Framleiðandi Gula Miðans hefur mikla reynslu í þróun og framleiðslu bætiefna og eru vörurnar vottaðar samkvæmt GMP gæðavottunarkerfinu. Það þýðir að blöndur Gula Miðans eru prófaðar af óháðum aðila og veitir því mikið öryggi fyrir neytandann hvað varðar gæði, hreinleika og áreiðanleika.

Vörur Gula Miðans eru fjölbreyttar og geta fullorðnir sem og börn fundið vörur við sitt hæfi sem styðja við heilbrigðan lífsstíl.