Númer eitt bætiefnabox Karl 45+ 30 skammtar

Númer Eitt

Vörunúmer : 10165200

  • Þessi blanda hentar körlum yfir fertugu sem vilja viðhalda orkunni og er umhugað um heilsu blöðruhálskirtilsins.
  • Fjölvítamín- og steinefnablanda með auka sínki, graskersfræjum, brenninetlu, lýkópeni, burnirót og D-vítamíni.

11.599 kr
Fjöldi

Fjölvítamín- og steinefnablanda með auka D-vítamíni og sínki, burnirót og sérvalinni jurtablöndu. Sérhönnuð fyrir karlmenn sem vilja halda í orkuna, styrkja varnir líkamans, huga að heilbrigði blöðruhálskirtils og hjarta og viðhalda eðlilegu magni testosteróns í blóðinu. 
Næring beint úr náttúrunni sem líkaminn á auðvelt með að nýta. Laus við óþarfa aukefni. Þægilegir dagspakkar sem auðvelt er að taka með sér hvert sem er. Allt í einum pakka: bæði umhverfisvænna og hagkvæmara. Hver poki er 1 dagsskammtur sem inniheldur 5 töflur og hylki. Orka – jafnvægi – viðhald.

  • Orka - vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri orkumyndun og vinna gegn þreytu
  • Hjarta - B12, B6, fólat C- og A-vítamín stuðla að heilbrigði hjarta- og æðakerfis
  • Blöðruhálskirtill - Lýkópen, brenninetla og graskersfræ eru talin stuðla að heilbrigði blöðruhálskirtils
  • Testósterónjafnvægi - Sínk er mikilvægt til að viðhalda eðlilegu magni testósteróns í blóðinu
  • Ónæmiskerfi - D-vítamín, C-vítamín, sínk, selen, B-12 og fólat stuðla að eðlilegri virkni ónæmiskerfisins

Í fullkomnum heimi fengjum við öll nauðsynleg næringarefni daglega beint úr heilnæmri fæðunni en eins og við vitum er lífið allskonar. Suma daga erum við græn í gegn og aðra er það kannski bara kaffi og ristað brauð. Þannig er lífið, enginn dagur eins og misjafnar áskoranir sem mæta okkur. Þess vegna tölum við stundum um að bætiefnin séu eins konar baktrygging.
 
  • Fyrir dagana sem þú ert á hlaupum og nærð ekki að borða eina næringarríka máltíð.
  • Fyrir dagana sem orkan er ekki upp á sitt besta.
  • Fyrir dagana sem þú maxaðir í ræktinni og þarft smá auka fyrir endurheimtina.
  • Fyrir hvern einasta dag til að tryggja líkamanum öll helstu næringarefnin.
 
Hvert einasta innihaldsefni í blöndunni er valið af kostgæfni og næringarefnin eru fengin beint úr náttúrunni: úr jurtum, ávöxtum og grænmeti sem eru rík af þeim. Þannig stuðlum við að hámarksnýtingu og höldum okkur fjarri óþarfa aukefnum.
Hönnun umbúðanna stuðlar svo að þægindum og góðum venjum.
 
Hver poki er einn dagsskammtur og hann inniheldur 5 hylki og töflur:
  • 1x D vítamín
  • 1x burnirót
  • 1x fjölvítamín- og steinefnablöndu
  • 2x jurtablöndu með betasítósteról, lýkópen, brenninetlurót og graskersfræjum
 
Þarna ertu með heildarpakka í einum poka sem er auðvelt að taka með sér út í daginn. Geymdu kassann þar sem þér hentar best svo þú munir eftir honum. Taktu dagsskammtinn með þér í vinnuna eða vikuskammtinn í fríið.
Orka – jafnvægi – viðhald
 
Hvaða kostum er varan gædd?
  • Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.
  • B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.
  • A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans og er ómissandi fyrir eðlilega slímhúð, húð, sjón og ónæmiskerfi.
  • C-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.
  • D-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi.
  • Magnesíum kemur víða við í líkamanum og stuðlar m.a. eðlilegri virkni tauga og vöðva, dregur úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
  • Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfis, eðlilegri húð og eðlilegri starfsemi skjaldkirtils.
  • Selen stuðlar að eðlilegu viðhaldi hárs og nagla auk þess að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og skjaldkirtils.
  • Sink stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og eðlilegu viðhaldi beina, tanna, húðar, hárs, nagla og sjónar. Það er ennfremur ómissandi til að viðhalda eðlilegu magni testosteróns í blóðinu.
  • K-vítamín stuðlar að eðlilegri blóðstorknun og eðlilegu viðhaldi beina.
  • Kopar stuðlar m.a. að viðhaldi eðlilegra bandvefja, eðlilegri orkuvinnslu, eðlilegri starfsemi taugakerfis og ónæmiskerfis og eðlilegri starfsemi hárs og húðar.
  • Mangan er mikilvægt fyrir orkuvinnslu, bein og bandvefi.
  • Burnirót hefur verið notuð um árhundruð og er talin orkugefandi.
  • Lýkópen er öflugt andoxunarefni sem finnst m.a. í tómötum og rannsóknir benda til að það hafi góð áhrif á heilsu hjartans og geti hjálpað til við að koma í veg fyrir vandamál tengd blöðruhálskirtli
  • Graskersfræ innihalda m.a. mikið magn sínks og magnesíum auk ýmissa annarra næringarefna.
  • Brenninetla er rík af næringarefnum og rannsóknir benda til þess að hún geti hjálpað til við að koma í veg fyrir og draga úr einkennum vegna stækkunar í blöðruhálskirtli.

Ábyrgðaraðili: Mulier Fortis ehf.br

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur